Mjólkurvörur hækka en annað lækkar

Mjólkurglasið hefur hækkað í verði síðustu ár.
Mjólkurglasið hefur hækkað í verði síðustu ár. mbl.is/Árni Sæberg

Verð á matvöru hefur í heildina lækkað um 1,9% á síðustu tveimur árum og má helst rekja það til gengisstyrkingar. Undantekningin á þessu er verð á mjólkurvörum en sá undirflokkur matvörunnar sker sig algjörlega úr og hefur hækkað langmest eða um 7,4%. 

Í tilkynningu frá ASÍ vegna málsins segir að hækkun á mjólkurvörum skýrist af því að lítil eða engin samkeppni sé á Íslandi á mjólkurvörumarkaði og því svigrúm til hækkana þrátt fyrir ytri aðstæður eins og gengisstyrkingu.  

Samkvæmt gögnum frá Hagstofunni yfir vísitölu neysluverðs hefur verðlagsþróun á matvörum á síðustu tveimur árum (janúar 2016 – janúar 2018) verið með þeim hætti að verð á innfluttum vörum hefur lækkað og sama má segja um þær vörur sem eru í samkeppni við innfluttar vörur.

Aðrir vöruflokkar sem hafa hækkað eru olíur og feitmeti en verð í þeim vöruflokki hefur hækkað um 2,8%. Þess má geta að inni í þeim vöruflokki eru t.d. smjör og smjörlíki sem tilheyrir að vissu marki mjólkuriðnaðinum hér á landi.

Þá hefur verð á fiski hækkað lítillega eða um 1,2%. Þeir matvöruflokkar sem hafa lækkað eru ávextir um 7%, grænmeti um 4,6% og verð á kaffi, te og kakói hefur lækkað um 8,%. Verð á súpum, sósum, blöndum og kryddi hefur lækkað um 3,5% og verð á gosdrykkjum og söfum um 1,6%. Þá hefur verð á kjöti lækkað um 0,6% og verð á brauð- og kornvörum um 3,3%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert