Ók á vegg í Hvalfjarðargöngunum

Röð myndaðist við göngin eftir að slysið varð og göngunum …
Röð myndaðist við göngin eftir að slysið varð og göngunum var lokað. Ljósmynd/Aðsend

Hvalfjarðargöngunum var lokað fyrr í dag eftir að bifreið hafði verið ekið á vegg. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um óhappið klukkan 12.45.

Talsvert tjón varð á bifreiðinni, sem var á leið til Reykjavíkur þegar óhappið varð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gat ekki gefið nánari upplýsingar um óhappið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert