Vann 200 milljónir í EuroJackpot

Aðalvinningur kvöldsins gekk ekki út í Eurojackpot.
Aðalvinningur kvöldsins gekk ekki út í Eurojackpot.

Enginn var með allar fimm aðaltölurnar og báðar stjörnutölurnar réttar í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot. 

Heppinn Þjóðverji hlaut annan vinning og fær hann rúmlega 200 milljónir í sinn hlut. Sjö miðaeigendur skiptu með sér þriðja vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 10 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir Þýskalandi, tveir í Ungverjalandi og sitt hvor miðinn á Ítalíu og í Danmörku.

Þá voru þrír íslenskir miðaeigendur með 4 réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fær hver þeirra 100.000 krónur í vinning. Einn vinningshafanna er í áskrift en hinir miðarnir voru keyptir í Krambúðinni, Byggðavegi 98 á Akureyri og 10-11, Reykjavíkurvegi 58 í Hafnarfirði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert