Lokanir og truflun á heitu vatn í Mosfellsbæ

Á grænu svæði verður minnkun á þrýsting. Á rauðu svæði …
Á grænu svæði verður minnkun á þrýsting. Á rauðu svæði lokast alveg fyrir vatn. Kort/Mosfellsbær

Í dag verða lokanir og truflun á þrýstingi á heitu vatni vegna viðgerða á stofnlögn í Mosfellsbæ. Unnið verður að viðgerða frá kl: 8:30 og fram eftir degi.

Á vef Mosfellsbæjar kemur fram að lokunin verði í Bjarkarholti á heitu vatni. Minni þrýstingur verður í öllu hverfinu fyrir neðan Vesturlandsveg frá Baugshlíð að Varmárskóla. Minnkunin á þrýsting nær eins og áður sagði frá Baugshlíð við Skálatún ásamt Hlíðartúnshverfi og að Varmárskóla fyrir neðan Vesturlandsveg.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert