Framboð Íslands samþykkt

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Eggert

Framboð Íslands um setu í framkvæmdastjórn UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, fyrir tímabilið 2021 til 2025 var samþykkt á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Hlutverk UNESCO er að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla samvinnu þjóða í mennta-, vísinda- og menningarmálum og efla þannig almenna tiltrú og virðingu fyrir réttlæti, lögum og mannréttindum, án tillits til trúarbragða, kynþáttar, kynferðis eða tungumála. UNESCO hefur ennfremur haft forystu um verndun menningararfleifðar heimsbyggðarinnar og Ísland hefur lagt ríka áherslu á skráningu menningarminja á Heimsminjaskrá UNESCO,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að framboð Íslands njóti stuðnings Norðurlandanna, sem hafi í sameiningu lagt ríka áherslu á að norrænt ríki eigi sæti í stjórn UNESCO.

„Norðurlöndin hafa skipst á að taka sæti í stjórninni frá upphafi en nú er komið að Íslandi að bjóða sig fram til setu í stjórn UNESCO fyrir tímabilið 2021 til 2025. Ísland átti síðast sæti í stjórn UNESCO tímabilið 2001-2005 en þá var Sveinn Einarsson, leikstjóri og rithöfundur, formaður íslensku UNESCO nefndarinnar. Áður hafði Ísland setið í stjórn 1981-1987,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert