Hjónum verði heimilt að eiga sitt hvort lögheimilið

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. mbl.is/Eggert

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hyggst leggja fram frumvarp í mars um breytingar á lögum um lögheimili og aðsetur, en í því verður gert ráð fyrir að hjónum verði heimilt að eiga sitt hvort lögheimilið.

Sigurður Ingi greinir frá þessu í færslu á Facebook.

„Síðastliðna áratugi hefur verið nægjanlegt að tilkynna nýtt lögheimili án þess að eigandi sé endilega upplýstur um að nýr aðili hafi bæst við á heimilið. Einnig er orðið algengara að hjón þurfi vinnu sinna vegna að vera í fjarbúð og eiga fleiri en eitt heimili af þeim sökum,“ skrifar Sigurður Ingi.

„Í mars hyggst ég leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um lögheimili og aðsetur. Gert er ráð fyrir að hjónum verði heimilt að eiga sitt hvort lögheimilið og einnig að Þjóðskrá Íslands skuli senda tilkynningu til þinglýsts eiganda fasteignar um þá sem skrá lögheimili sitt í fasteign í hans eigu,“ segir hann ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert