Lýsa yfir óvissustigi vegna skjálfta

Grannt er fylgst með skjálftunum á Veðurstofu Íslands.
Grannt er fylgst með skjálftunum á Veðurstofu Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.

Jarðskjálftahrina austan við Grímsey heldur áfram en undir morgun mældist skjálfti upp á 5,2. Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði og var svipuð hrina í gangi á svæðinu 2013. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Ómögulegt að segja hvaða áhrif stóri skjálftinn muni hafa

Fram kemur að fjöldi misgengja sé á þessu svæði og ómögulegt sé að segja hvaða áhrif stóri skjálftinn í nótt muni hafa á þau misgengi.

„Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta. Síðasti stóri skjálftinn, 5.4 að stærð, var árið 2013 á þessum slóðum,“ segir í tilkynningunni.

Óvissustig þýðir aukið eftirlit með atburðarás sem gæti leitt til þess að öryggi fólks sé ógnað

Þá segir að óvissustig almannavarna þýði að aukið eftirlit sé haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

„Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum.

Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst.,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert