Berst gegn limlestingum á kynfærum kvenna

Guðlaugur Þór Þórðarson og Nafissatou Diop, yfirmaður samstarfsverkefnisins
Guðlaugur Þór Þórðarson og Nafissatou Diop, yfirmaður samstarfsverkefnisins Ljósmynd/Aðsend

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra skrifaði í dag undir endurnýjun á samningi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) um stuðning til fjögurra ára við verkefni sem hefur það að markmiði að útrýma limlestingu á kynfærum kvenna og stúlkna. 

„Limlesting á kynfærum kvenna er heilbrigðisvandamál, brot á mannréttindum og birtingarmynd á kynbundnu ójafnrétti og ofbeldi, og því mikilvægt að styðja við verkefni sem berjast gegn þessum skaðlegu siðum,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningu.  

Utanríkisráðuneytið hefur lagt áherslu á baráttuna gegn limlestingu á kynfærum kvenna og stutt verkefnið frá árinu 2011. Female Genital Mutilation/Cutting (FGM/C) nær til allra aðgerða sem fela í sér að ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð að hluta til eða algerlega og þeirra áverka, andlegra og líkamlegra, sem koma til sökum slíkra aðgerða. Flestar stúlkur eru limlestar á aldrinum frá fæðingu til fimmtán ára aldurs og skaðinn er óbætanlegur. 

UNFPA áætlar að rúmlega 200 milljónir kvenna í 30 löndum hafi orðið fyrir limlestingu á kynfærum. Langflest þessara landa eru í Afríku. Óttast er að 68 milljónir stúlkna verði limlestar með þessum hætti fyrir árið 2030 að óbreyttu. Menningarlegar ástæður og siðir liggja til grundvallar og styðja við þá hugmynd að FGM/C sé öllum stúlkum nauðsynleg sem hluti af undirbúningi þeirra fyrir hjónaband og fullorðinsár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert