Ljósabekkjum hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum, samkvæmt talningu sem Geislavarnir ríkisins stóðu fyrir.
Stofnunin hefur talið ljósabekki á þriggja ára fresti frá árinu 2005. Það ár voru slíkir bekkir 277 talsins, þar af 144 á höfuðborgarsvæðinu og 133 á landsbyggðinni.
Þremur árum síðar voru bekkirnir 196, þar af 98 bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Í nýjustu talningunni, sem fór fram í lok síðasta árs, reyndust vera 90 ljósabekkir á landinu, þar af 58 á höfuðborgarsvæðinu og 32 á landsbyggðinni.