Plast í plastpokum í gráu tunnuna

Árið 2017 fóru um 27 kíló af óflokkuðu plasti frá …
Árið 2017 fóru um 27 kíló af óflokkuðu plasti frá hverjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu í sorptunnuna. mbl.is/Sorpa

Íbúar Hafnarfjarðar geta frá og með 1. mars sett allt plast saman í lokuðum plastpoka beint í gráu sorptunnuna.  Plastpokarnir verða flokkaðir sérstaklega frá öðru rusli og þeim komið til endurvinnslu. Plastflokkun í plastpoka er samstarfsverkefni SORPU og fjögurra sveitarfélaga; Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Gæta skal þess að halda plastinu frá öðru sorpi í lokuðum pokum þannig að tæki Sorpu geti flokkað plastið frá skilvirknislega. Ekki mun þurfa neina sérstaka poka undir plastið heldur bara hefðbundna plastpoka. Þannig geta íbúar notað innkaupapoka og aðra plastpoka sem falla til á heimilum. Markmiðið er að draga úr urðun plasts og nýta betur hráefni í plastinu. 

„Þetta er mikilvægur áfangi og auðveldar fólki til mikilla muna að flokka sorp á heimilum sínum,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur, formanni bæjarráðs og fulltrúa Hafnarfjarðar í stjórn Sorpu, í fréttatilkynningu. „Mikil umhverfisvakning hefur átt sér stað undanfarin ár og sífellt fleiri sem flokka plast til endurvinnslu. Stjórn Sorpu samþykkti síðastliðið vor að komið skyldi upp tækni við móttöku sorps úr gráu tunnunni sem flokkaði plastið frá og bæta þannig þjónustuna við íbúana. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst.“

Nýr búnaður

Í mars verður tekinn í notkun nýr búnaður í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu sem mun auðvelda flokkun á plasti til endurvinnslu. Þá verður einfaldlega hægt að setja hreint plast í lokuðum plastpoka í sorptunnuna (orkutunnuna) og Sorpa flokkar það svo vélrænt frá öðrum úrgangi og kemur til endurvinnslu. Nýi tækjabúnaðurinn mun meta eðlisþyngd plastsins og blæs pokum með flokkuðu plasti frá öðrum úrgangi. Ekki mun þurfa neina sérstaka poka undir plastið, að öðru leyti en því að þeir þurfa að vera úr plasti. Íbúar geta því t.d. notað innkaupapoka eða aðra plastpoka sem til falla á heimilum. Markmiðið er að draga úr urðun plasts og nýta betur hráefni í plastinu. 

27 kíló af óflokkuðu plasti á hvern íbúa

Árið 2017 fóru um 27 kíló af óflokkuðu plasti frá hverjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu í sorptunnuna, samkvæmt rannsókn Sorpu á heimilisúrgangi, og enduðu þar með á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. Aðeins um 5 kíló af plasti á íbúa skilaði sér flokkað í endurvinnslufarveg. Plast er búið til úr olíu, sem er óendurnýjanleg auðlind, og er mikilvægt að nýta betur en nú er gert. Plast brotnar seint eða ekki niður í náttúrunni og getur valdið lífríkinu skaða sleppi það óhindrað út í umhverfið. Ábyrgð okkar allra er að umgangast auðlindir jarðar af virðingu og koma úrgangi í þann farveg að hráefni nýtist á nýjan leik en fari ekki til spillis eða valdi umhverfinu skaða. Samfélagið þarf að gera betur hvað plastið varðar og með nýjum vélrænum flokkunarbúnaði í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu er einfalt að koma því til endurvinnslu. Þá er hagkvæmara fyrir sveitarfélagið, og þar með íbúana, að sem mest af plasti, pappír og pappa fari í endurvinnslufarveg fremur en í urðun.

Samstarf fjögurra sveitarfélaga

Plastflokkun í plastpoka er eins og áður segir samstarfsverkefni Sorpu og fjögurra sveitarfélaga; Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Í aðdraganda verkefnisins tóku íbúar á Seltjarnanesi þátt í tilraunaverkefni um flokkun á plasti í poka sem setja mátti í sorptunnuna. Starfsmenn Sorpu flokkuðu svo plastið frá öðrum úrgangi. Tilraunaverkefnið stóð yfir í rúmt ár og tæplega sjöfaldaðist magn plasts í endurvinnslu frá íbúum á Seltjarnarnesi á þeim tíma. Aðferðin er einföld, hagkvæm, leiðir af sér verulegan umhverfisávinning og hefur aukna þjónustu við íbúa að leiðarljósi.

Þangað til plastverkefnið hefst 1. mars geta íbúar Hafnarfjarðar eftir sem áður farið með plast í grenndargáma þar sem eru sérstakir gámar fyrir plast og einnig er hægt að fara með plast á endurvinnslustöðvar Sorpu. Í Hafnarfirði eru grenndargámar á sjö stöðum: Hólshraun við Fjarðarkaup, Miðvangur við Nettó, Fjarðargata við Fjörð, Melabraut, Tjarnartorg við Bónus, Staðarberg við Iceland áður 10-11 og við Sólvang. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert