Tilkynnt var um reiðmann sem féll af baki við Kaldárselsveg laust fyrir klukkan 16 í dag.
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að hann hafi hlotið óveruleg meiðsli.
Lögreglunni barst tilkynningu um innbrot í geymslu í húsi í Austurbænum um fimmleytið í dag. Málið er í rannsókn.
Umferðaróhapp varð á Reykjanesbraut, einnig um fimmleytið, og er ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Um hálfsjöleytið í kvöld var bifreið ekið á ljósastaur við Sviðholt en gerandinn fór af vettvangi. Málið er í rannsókn.
Fleiri umferðaróhöpp urðu síðdegis í dag og í kvöld, þar á meðal við Álftanesveg, Kársnesbraut og á Reykjanesbraut en lítil sem engin meiðsli urðu á fólki.