Alls bárust 3.176 umsóknir um hreindýraveiðileyfi fyrir árið 2018 en veiða má 1.450 dýr, 389 tarfa og 1.061 kú, þar af skulu 40 kýr veiddar í nóvember.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Þar segir enn fremur, að laugardaginn 24. febrúar verði leyfin dregin út í beinni útsendingu á netinu.
Stefnt er á að varpa útdrættinum á heimasíðu Umhverfisstofnunar.