Búið er aflýsa öllu innanlandsflugi Air Iceland Connect í dag, utan flugs til Akureyrar klukkan fjögur. Athuga á með þá vél um hálfþrjúleytið í dag. Flug til Nuuk á Grænlandi nú síðdegis er hins vegar á áætlun.
Greint var frá því í morgun að flugi flugfélagsins fyrir hádegi yrði frestað og staðan svo tekin undir hádegi, en nú hefur eins og áður sagði verið ákveðið að aflýsa öllum vélum utan einnar.
Flugfélagið Ernir aflýsti einnig áætlunarflugi sínu í morgun og enn var verið að athuga með hádegisflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Þá gerir flugfélagið enn ráð fyrir að fljúga til Húsavíkur og Vestmannaeyja samkvæmt áætlun nú síðdegis.
Röskun varð einnig á millilandaflugi og lá flug niðri um tíma í morgun.