„Átti von á að það yrði kaldara“

Veðrið hefur gert mörgum lífið leitt í dag. Fjölmargir ferðamenn eru staddir á landinu og þeir létu rok og rigningu ekki stöðva sig í að skoða sig um í bænum. Mæðgurnar Patricia Schaeffer og Dana McDonald eru í heimsókn frá Boston og þær segja veðrið ekki hafa haft mikil áhrif á ferðalagið.

mbl.is ræddi við mæðgurnar í rokinu og slabbinu í bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert