Bílarnir drápu á sér í vatnsflaumnum

Bílstjórarnir sem virtu ekki lokanir á vegi undir brúnni við Smáralind vegna vatnselgsins, sjá væntanlega eftir því núna þar sem vélarnar gáfust upp í djúpu vatninu og bílarnir sátu þar fastir. Starfsmenn Kópavogsbæjar þurftu að hafa sig alla við að ítreka það við fólk að vegurinn væri lokaður.

mbl.is var á staðnum og náði myndum af því þegar bílarnir reyndu að komast yfir vatnið sem var orðið verulega djúpt, en tjón á bílum getur orðið verulegt ef vatn fer inn á vélina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert