Jónas Már skyndhjálparmaður ársins

Jónas Már Karlsson er skyndihjálparmaður ársins 2017. Hann bjargaði konu …
Jónas Már Karlsson er skyndihjálparmaður ársins 2017. Hann bjargaði konu sem hann var að keyra út mat til með því að beita heimlich aðferðinni eftir að biti hafði orðið fastur í hálsi hennar. mbl.is/​Hari

Jónas Már Karlsson var í dag útnefndur skyndihjálparmaður ársins 2017, en Jónas bjargaði eldri konu sem hann var að keyra út mat til með því að beita heimlich aðferðinni á hana áður en hann kallaði til sjúkrabíl.

Jónas starfar sem kokkur hjá fyrirtæki sem keyrir út heitan mat, m.a. til ýmissa eldri borgara í Hafnarfirði. Þennan afdrifaríka dag var Jónas nýlagður af stað með fullan bíl af matarsendingum er hann hringir bjöllunni hjá eldri konu. Konan var sein að svara, sýndi Jónasi með látbragði er hún opnaði, að það þurfi að slá á bakið á henni.

Jónas hófst handa við að slá konuna á bakið, en ekkert gekk og áttaði hann sig á því að ef hann ætti að ná bitanum úr hálsi konunnar þyrfti hann að beita kröftum. Hann tók utan um hana aftan frá og þrýsti fast, eða beitti svokallaðri heimlich aðferð. Var konan orðin mjög máttfarin þegar þarna var komið við sögu.

Með þessu náði Jónas að losa örlítið um bitann sem stóð fastur í konunni og heyrði soghljóð þegar opnaðist lítillega fyrir öndun. Bitinn náðist þó ekki allur út og  hringdi Jónas því á sjúkrabíl og beið með konunni uns sjúkrabíllinn kom og sjúkraflutningamenn tóku við. 

Hann hélt svo áfram vinnu sinni áfram og velti atvikinu kannski ekki mikið fyrir sér, enda beið fullur bíll af mat sem þurfti að koma til skila. Daginn eftir höfðu aðstandendur konunnar hins vegar samband við hann og sögðu honum frá því að hún hefði þurft að fara á bráðadeildina til þess að hægt væri að losa bitann alveg úr hálsinum.

Gerði Jónas sér fyrst þá fulla grein fyrir alvarleika málsins og hversu heppinn þau bæði voru að hann hefði verið þarna akkúrat á þessum tíma.

Jónas starfaði sem þjónn í 20 ár og veit ekki hve oft hefur hrokkið ofan í fólk þegar hann hefur verið við störf, en aldrei þannig að biti náist ekki upp. Hann hefur líka farið reglulega á skyndihjálparnámskeið síðan hann var 16 ára og hefur vinnustaður Jónasar nú rætt um að halda skyndihjálparnámskeið eftir atvikið.

Var það samdóma álit dómnefndar að Jónas Már Karlsson hefði sýnt hárrétt viðbrögð. Hann hafi byrjað á að reyna að veita konunni hjálp, en hringt síðan á sjúkrabíl þegar honum varð ljóst að hann gæti ekki klárað verkið einn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert