Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur afhent framboð sitt til áframhaldandi formennsku í flokknum.
Þessu greindi hann frá á Facebook-síðu sinni.
Kosningin fer fram á landsfundi flokksins 2. mars.
Logi afhenti framboðið Þorgerði Jóhannsdóttur, skrifstofustjóra Samfylkingarinnar, á Hallveigarstíg í Reykjavík.