4% atvinnuleysi í janúar

mbl.is/​Hari

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 203.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í janúar 2018, sem jafngildir 81,7% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.500 starfandi og 8.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,0%.

Samanburður mælinga fyrir janúar 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið hefur aukist um 12.300 manns og hlutfall þess af mannfjölda aukist um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.800 og hlutfall þeirra af mannfjölda hækkaði um 1,2 prósentustig. Atvinnulausir eru um 600 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra jókst um 0,1 prósentustig. Alls voru 45.600 utan vinnumarkaðar og fækkaði þeim um 900 manns frá því í janúar 2017 en þá voru þeir 46.500.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,9% í janúar

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 209.400 í janúar 2018 sem jafngildir 83,4% atvinnuþátttöku, hækkun um 0,4 prósentustig frá desember 2017. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í janúar var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 8.300 og jókst um 1.600 manns frá áætluðum fjölda í desember. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli desember 2017 og janúar 2018 um 0,6 prósentustig, úr 3,3% í 3,9%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í janúar 2018 var 80,1%, sem er rétt um 0,1 prósentustigi lægra en það var í desember. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar minnkaði úr 42.200 í 41.800 á milli mánaða, eða um 400 manns. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi hefur aukist um 0,4 prósentustig og á síðustu tólf mánuðum hefur það aukist um 0,7 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði stendur hins vegar nánast í stað en þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða hefur það lækkað um 0,6 prósentustig.

Framkvæmd

Janúar 2018 nær til fjögurra vikna, eða frá 1. til og með 28. janúar. Í úrtak vinnumarkaðsrannsóknarinnar völdust af handahófi 1.526 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.497 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.009 einstaklingum sem jafngildir 67,4% svarhlutfalli. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir janúar 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,3 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,5 prósentustig og atvinnuleysi ±1,4 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Áætlaðar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert