Enn er klakastífla í Hvítá

Dróna var flogið yfir ána til að kanna ástand hennar.
Dróna var flogið yfir ána til að kanna ástand hennar. Af Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi

Lögreglumenn af Suðurlandi fóru í morgun og könnuðu og mynduðu klakastífluna í Hvítá við veiðihúsið við Oddgeirshóla. 

Í frétt á Facebook-síðu lögreglunnar segir að vatn renni undan stíflunni á tveimur stöðum. „Vatn sem hefur verið að lóna við Vaðnesið er tært og kemur að líkindum eingöngu úr Höskuldslæknum,“ segir í færslunni. „Veðurspáin hljóðar upp á hlýnandi veður á morgun og töluverða úrkomu. Meðan áin rennur undir stífluna er ekki talin hætta af því að hún flæmist upp á land. Ef það gerist á þessum stað mun hún að líkindum fara í sinn farveg nokkru neðar aftur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert