Fimm áskrifendur Morgunblaðsins duttu í lukkupottinn í morgun þegar dregið var í happdrætti Morgunblaðsins. Vinningshafarnir hljóta hver fyrir sig gjafabréf fyrir tvo til Cincinnati í Bandaríkjunum með WOW air.
Vinningshafarnir eru þeir Ragnar Sigurðsson, Hafliði Gíslason, Þorsteinn Hallgrímsson, Magnús Ríkharðsson og Elías Gíslason.
Morgunblaðið og mbl.is óska þeim til hamingju. Á næstu vikum eiga fleiri áskrifendur Morgunblaðsins möguleika á að vinna ferð til áfangastaðar WOW air í áskriftarleiknum.
Næsta fimmtudag verða fimm heppnir áskrifendur dregnir út sem fara til St. Louis í Bandaríkjunum. Alls verða 104 flugmiðar gefnir í áskriftarleiknum sem verða dregnir út á tíu vikum.
Búið er að draga út flug til San Francisco, Stokkhólms, Barcelona, Tel Aviv, Cleveland, Detroit og nú Cincinnati. Enn á eftir að draga út flug til St. Louis, Dublin og Dallas.