Fann 400 kannabisplöntur í Kópavogi

Lögreglustöðin við Hverfisgötu.
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. mbl.is/Golli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu stöðvað kannabisræktun á nokkrum stöðum í umdæminu, en í þeirri stærstu var lagt hald á nærri 400 kannabisplöntur.

Þrír karlmenn voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Kannabisræktunin var í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi en þar var einnig að finna um 6 kg af tilbúnum kannabisefnum til sölu.

Ræktunin var mjög fullkomin og búnaðurinn eftir því.

Lögreglan tók meðal annars í sína vörslu gróðurhúsalampa, blásara og straumbreyta  í tugatali.

Kannabis.
Kannabis. AFP

250 kannabisplöntur í bílskúr

Lögreglan stöðvaði einnig kannabisræktun í bílskúr í austurhluta Reykjavíkur, en var þar lagt hald á um 250 kannabisplöntur. Hálft kíló af kannabisefnum fannst einnig í bílskúrnum og þar var sömuleiðis lagt hald á mikið af búnaði tengt ræktuninni. Einn var handtekinn vegna málsins.

70 plöntur í fjölbýlishúsi

Þá voru rúmlega 70 kannabisplöntur haldlagðar þegar ræktun var stöðvuð í fjölbýlishúsi í vesturhluta borgarinnar. Þar var einnig einn handtekinn.

Loks lagði lögreglan hald á 1,5 kg af tilbúnum kannabisefnum til sölu, þegar hún framkvæmdi húsleit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Á sama stað fannst sömuleiðis ætlað kókaín og MDMA, auk fjármuna sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst.

Fimm mannanna sem komu við sögu í þeim eru um þrítugt. Sjötti maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri.

Lögreglan minnir á upplýsingasíma lögreglu, 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.

Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert