Fargjald Flugrútunnar sem sinnir rútuferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hækkar í 2.950 krónur um næstu mánaðarmót.
Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, segir í samtali við Túrista.is að ástæðan fyrir þessu sé aukinn kostnaður við Keflavíkurflugvöll vegna útboðs Isavia á aðstöðu fyrir sætaferðir frá flugstöðinni.
Kynnisferðir áttu hæsta boðið í útboðinu og þurfa framvegis að greiða Isavia 41,2% af tekjum sínum af akstrinum.
Sem dæmi nemur miðasala í rútu sem keyrir frá flugstöðinni með 50 farþega um 147 þúsund krónum og þar af fær Isavia 60 þúsund krónur.
Samhliða hækkuninni mun Flugrútan bjóða upp á sérstakt afsláttargjald fyrir þá sem ferðast með henni reglulega. Þjónustan við BSÍ verður einnig efld fyrir ferðamenn sem eru á leið þaðan á gististað. Jafnframt á enginn að þurfa bíða lengur en í 20 mínútur eftir því að rúturnar keyri frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Hópbílar buðu næsthæst í útboðinu og mun fyrirtækið greiða Isavia þriðjung af sinni veltu.
Fargjöld hjá Hópbílum/Airport Direct munu sömuleiðis hækka í 2.990 krónur.
Fram kemur á Túristi.is að tekjur Isavia af rútustæðunum fyrir framan komusalinn muni aukast upp í að minnsta kosti 290 milljónir króna á ári.