Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu á í nógu að snúast með að sinna útköllum vegna vatnstjóns. Mikil úrkoma og klaki yfir niðurföllum veldur því að mikill vatnsflaumur hefur myndast víða.
Þau útköll sem slökkviliðið hefur sinnt í kvöld eru nánast eingöngu vegna vatnsleka.
Samkvæmt Veðurstofu mun draga úr vindi og úrkomu upp úr miðnætti.