Sendibíll valt á Breiðholtsbraut fyrir skömmu. Ljósmyndari mbl.is var á ferðinni en ekki var lokað fyrir umferð vegna óhappsins. Bifreiðin liggur á hliðinni á umferðareyju.
Uppfært klukkan 17:38
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu valt sendibíllinn rétt fyrir klukkan 17 og fauk hann á hliðina í vindhviðu. Ekki urðu slys á fólki og umferð hefur ekki verið stöðvuð. Slökkvilið og lögregla vinna nú að því að reisa bílinn við aftur.