Sjúkratryggingar Íslands ætla ekki að segja upp rammasamningum við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara þar til velferðarráðuneytið hefur tekið afstöðu til tillagna um nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir. Þetta er gert að beiðni Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Sjúkratrygginga.
Í gær var greint frá því að Sjúkratryggingar Íslands hefðu tilkynnt sérgreinalæknum og sjúkraþjálfurum að þeir mættu eiga von á því að samningum yrði sagt upp.