53 þúsund laxar drápust

Laxar drápust hjá Arnarlaxi við flutning milli kvía.
Laxar drápust hjá Arnarlaxi við flutning milli kvía. mbl.is/Helgi Bjarnason

Liðlega 53 þúsund laxar drápust í sjókví Arnarlax í Tálknafirði eftir skemmdir sem urðu á kvínni í óveðri í byrjun vikunnar. Það er svipað magn af laxi og stangveiðimenn veiddu í öllum ám landsins árið 2016.

Óttar Yngvason lögmaður, sem kemur fram fyrir hönd Náttúruverndarsamtaka Íslands, Náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi og tíu veiðiréttarhafa, óskaði eftir upplýsingum hjá Matvælastofnun (MAST) um skemmdir sem urðu á sjókví Arnarlax í Tálknafirði á dögunum.

Í svari MAST kemur fram að stofnunin fékk fyrstu tilkynningu um atvikið mánudaginn 12. febrúar. Í kvínni voru 194.259 laxar. Hún var tæmd og drápust 53.110 laxar. Til samanburðar má geta að á árinu 2016 voru veiddir á stöng í öllum íslensku laxveiðiánum 53.600 laxar, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert