Björgunarsveitarmenn festu skiltið

mbl.is/Kristinn Magnússon

Skiltið sem hékk á bláþræði framan á hótelinu Hlemmur Square í gærkvöldi var fest kirfilega af björgunarsveitarmönnum áður en þeir héldu heim á leið. 

Fyrst reyndu björgunarsveitarmenn að taka skiltið niður en hættu svo við það. 

Svæðið í kringum skiltið er enn afgirt af lögreglunni. 

mbl.is/Kristinn Magnússon

Eins og mbl.is greindi frá í gær virðist sem skrúfur hafi losnað úr skiltinu í óveðrinu í gær. 

Skiltið, sem er úr áli, er um fjög­urra metra hátt, um hálf­ur metri að breidd og veg­ur um 200 kíló, að sögn Klaus Ortlieb, eins af eigendum Hlemmur Square. 

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert