Cooper ásamt 60 minutes á Íslandi

Cooper virðist sáttur í íslenskri náttúru.
Cooper virðist sáttur í íslenskri náttúru. Ljósmynd/Instagram Anderson Cooper

Bandaríski fréttamaðurinn Anderson Cooper er staddur á Íslandi ásamt fylgdarliði frá sjónvarpsstöðinni CBS.

Fram kemur á vef Víkurfrétta að Cooper, sem er fréttamaður CNN og 60 Minutes, hafi tekið viðtal á viðtal á fyrsta 5 stjörnu hóteli landsins, Diamond Suites.

Þá hefur Cooper ennfremur birt ljósmynd af sjálfum sér á Instagram þar sem hann greinir frá því að hann sé staddur hér á landi við vinnu. 

Víkurfréttir ræða við Steinþór Jónsson, hóteleiganda á Diamond Suites, sem segir að það hafi verið gaman að fá hópinn í heimsókn. Cooper sé skemmtilegur karakter með góðan húmor sem hafi gefið sér tíma til að spjalla við fólk. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert