Morgunblaðið og mbl.is tilnefnd

Þarf að virkja meira í bráð? Mátturinn eða dýrðin, umfjöllun …
Þarf að virkja meira í bráð? Mátturinn eða dýrðin, umfjöllun Sunnu Óskar Logadóttur blaðamanns á ritstjórn mbl.is, er tilnefnd til blaðamannaverðlauna. mbl.is/RAX

Morg­un­blaðið og mbl.is eru til­nefnd til blaðamanna­verðlauna fyr­ir árið 2017 en dóm­nefnd á veg­um Blaðamanna­fé­lags Íslands hef­ur birt til­nefn­ing­ar sín­ar til verðlaun­anna sem verða afhent í Hörpu laugardaginn 3. mars.

Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður á ritstjórn mbl.is, er tilnefnd í flokknum umfjöllun ársins fyrir að reifa skilmerkilega hvernig raforkuþurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjónarmið þar um. Mátturinn eða dýrðin, umfjöllun Sunnu, birtist bæði á mbl.is og í Morgunblaðinu. 

Júlía Margrét Alexandersdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, er tilnefnd í flokknum viðtal ársins fyrir einlægt viðtal við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eftirköstum þess að eiginmaður hennar, Sigursteinn Gunnarsson, svipti sig lífi árið 1997.

Sam­kvæmt reglu­gerð um verðlaun­in skal dóm­nefnd birta þrjár til­nefn­ing­ar í hverj­um af fjór­um flokk­um verðlaun­anna.

Tilnefningar til blaðamannaverðlauna eru þessar:

Viðtal ársins

Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni

Fyrir áhrifamikið viðtal við Sigurlaugu Hreinsdóttur, móður Birnu Brjánsdóttur, þar sem hún segir frá lífshlaupi dóttur sinnar, missinum, sorginni og viðbrögðum samfélagsins.

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu

Fyrir einlægt viðtal við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eftirköstum þess að eiginmaður hennar, Sigursteinn Gunnarsson, svipti sig lífi árið 1997.

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV

Fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi? Einstök og falleg innsýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálfbróður og hittir í fyrsta sinn.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Alma Ómarsdóttir, RÚV.

Fyrir upplýsandi og heildstæða umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru, hverjir væru meðmælendur þeirra og áhrif uppreistarinnar á brotaþola.

Hörður Ægisson, Fréttablaðinu

Fyrir greinargóða umfjöllun um viðskipti með hlutafé í Arion banka, ekki síst áhrif kaupa þriggja vogunarsjóða í bankanum.

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Jóhann Páll Jóhannsson og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Stundinni

Fyrir afhjúpandi umfjöllun um viðskipti Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdraganda bankahruns.

Umfjöllun ársins

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, RÚV

Fyrir greinargóða umfjöllun um átakanlegar aðstæður þeirra barna sem bjuggu á Kópavogshælinu á árunum 1952-1993, vanrækslu þeirra og ofbeldi sem þau voru beitt. 

Kjartan Hreinn Njálsson, Stöð 2/365

Fyrir nýstárlega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfðatæknina og hvernig íslenskir vísindamenn beita henni til að þróa ný lyf og hvaða siðferðilegar spurningar tæknin vekur.

Sunna Ósk Logadóttir, mbl.is

Fyrir að reifa skilmerkilega hvernig raforkuþurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjónarmið þar um.

Blaðamannaverðlaun

Magnús Halldórsson, Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir, Kjarnanum

Fyrir greinargóða umfjöllun um tillögur dómsmálaráðherra til Alþingis um skipan í stöður dómara við hið nýja dómsstig Landsrétt.

Ritstjórn, Stundinni

Fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðisbrotamanna, áhrif þess á fórnarlömb mannanna og tregðu stjórnvalda til upplýsingagjafar.

Sigríður Hagalín, RÚV

Fyrir upplýsandi umfjöllun um konur sem fengu mótmælendur fyrir utan heimili sín í kjölfar hrunsins og mismunandi viðhorf mótmælenda þegar þeir litu til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert