Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíll ók á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi skammt frá Hamraborg í Kópavogi rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Tveir bílar úr gagnstæðri átt rákust saman með þeim afleiðingum að annar endaði á ljósastaurnum. Ekki er vitað um líðan þremenninganna.
Ljósastaurinn bognaði í árekstrinum og þurftu starfsmenn Orkuveitunnar að aftengja hann.
Leiðrétt: Í upphaflegri útgáfu var því haldið fram að fjórir hefðu verið fluttir á spítala. Þeir voru þrír.