Tveir fangelsaðir í Eyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Sigurður Bogi

Tveir karlmenn voru látnir gista fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum í nótt.

Að sögn lögreglunnar var annar þeirra í ölvunarástandi en hinn var mjög æstur og því handtekinn og lokaður inni.

Töluvert af fólki fór út að skemmta sér í Eyjum í nótt, enda nokkuð af bátum í höfn sökum veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert