Tilkynnt var um umferðaróhapp á Höfðabakka laust fyrir miðnætti. Þar hafði bifreið verið ekið út af veginum.
Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Um þrjúleytið í nótt var ökumaður stöðvaður í Breiðholti grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við nánari skoðun reyndist ökumaðurinn í akstursbanni vegna fyrri afskipta lögreglu.