Ók á vegrið og fluttur á slysadeild

Frá slysstaðnum á Reykjanesbraut.
Frá slysstaðnum á Reykjanesbraut. Ljósmynd/Ivar Vivaas

Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bílnum á vegrið á Reykjanesbraut, skammt frá brú sem er neðst í Ártúnsbrekkunni.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru meiðslin minni háttar. Bíllinn var að koma inn á Reykjanesbrautina þegar slysið varð. 

Einn slökkvibíll var sendur á vettvang í olíuhreinsun.

Nóg hefur verið að gera hjá slökkviliðinu í dag og hefur það farið í níu útköll á dælubílum.

Frá slysstað.
Frá slysstað. Ljósmynd/Ivar Vivaas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert