Birta laun og greiðslur þingmanna

mbl.is/Eggert

Búið er að opna 1. áfanga nýrrar upplýsingasíðu á vef Alþingis, en þar eru birtar fastar launagreiðslur til þingmanna og fastar kostnaðargreiðslur, en síðarnefndu greiðslurnar eru frá 30.000 kr. upp í 258.000 kr.

Einn þingmaður fær lægstu greiðsluna en 9 þingmenn fá 257.657 kr. í fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur.

Fram kemur á vef Alþingis, að á síðunni er hægt að nálgast upplýsingar um alla þingmenn á einum stað. Eins og þar megi sjá eru fastar greiðslur til þingmanna mismunandi eftir trúnaðarstörfum og búsetu.

Þá sé gert ráð fyrir að í næstu viku, á bilinu 7. til 10. mars verði hægt að opna á 2. áfanga vefsíðunnar en þá verði birtar upplýsingar um greiðslur sem eru breytilegar, þ.m.t. endurgreiðslur fyrir útlögðum ferðakostnaði.

Bæði 1. og 2. áfangi vefsíðunnar miðast við birtingu upplýsinga frá 1. janúar 2018. Jafnframt er að hefjast undirbúningur að því að birta gögn frá liðnum tíma og miðast sá undirbúningur við að farið verði um áratug aftur í tímann. 

Fastar mánaðarlegar greiðslur til þingmanna nema frá 1,1 milljón upp í tvær milljónir króna, en Katrín Jakobsdóttir fær hæstu greiðsluna. Ráðherrar í ríkisstjórninni eru með 1,8 milljónir kr. á mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert