Bara eitt rafbílastæði fyrir fatlaða

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, (t.v.) vakti athygli á …
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, (t.v.) vakti athygli á takmörkuðu aðgengi fatlaðra að rafbílastæðum og hleðslustöðvum. mbl.is/​Hari

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, vakti athygli á því á þingi í dag aðgengi fatlaðra að bílastæðum fyrir rafbíla og hleðslustöðvum væri afar takmarkað. Reyndar vissi hann aðeins um eitt slíkt bílastæði og það væri við verslun IKEA í Garðabæ.

„Hvað eru öryrkjar í augum ríkisstjórnarinnar, bæði núverandi og fyrrverandi? Eru þeir fjórða flokks þegnar eða algjörlega utangarðs. Þá ætla ég sérstaklega að taka dæmi í sambandi við nýjungar. Nú er rafbílavæðingin á fullu og það er eiginlega furðulegast af öllu að það er eitt bílastæði fyrir rafbíla fyrir fatlaða sem ég veit um, og það er í IKEA,“ sagði Guðmundir í ræðu sinni á Alþingi í dag þar sem umræða fór fram um störf þingsins.

„Nú á að rafbílavæða hringinn í kringum landið, en það eru engin stæði fyrir öryrkja. Öryrkjar eiga ekki að fara hringinn í kringum landið því það þarf alveg sérstakan útbúnað. Því miður eru fæstar hleðslustöðvar fyrir rafbíla aðgengilegar og engar reglur til um aðgengi slíkra hleðslustöðva.“

Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru nú víða um landið en Guðmundur …
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru nú víða um landið en Guðmundur segir aðgengi fatlaðra að þeim ekki gott, enda þurfi þeir sérstakan búnað. mbl.is/Orka náttúrunnar

Guðmundur sagði að erlendis hefðu víða verið settar reglur um að minnsta kosti eitt af hverjum 25 bílastæðum fyrir rafbíla ættu að vera aðgengileg fyrir fatlaða, eða fjögur prósent. Hvað hleðslustöðvar varðar sagði hann bandarísku orkustofnunina hafa mælt fyrir um að ein af hverjum sjö ætti að vera aðgengileg fyrir fatlaða.

„Næstkomandi mánudag stendur málefnahópur ÖBÍ fyrir málþingi á alþjóðlegum degi aðgengis þar sem einmitt þetta mál verður rætt. Ég er búinn að senda inn fyrirspurn til hæstvirts ráðherra um það hvernig verður tekið á þessu máli. Mér finnst að ríkisstjórnin hefði nú átt að geta gefið yfirlýsingu á þessum degi um að það verði hvergi hvikað frá þessu og rafbílavæðing og rafbílastæði fyrir öryrkja verði mannsæmandi og allir geti notað þessa nýjung.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert