Dregur úr launamun kynjanna

Af vef Evrópuvaktarinnar

Konur voru að jafnaði með 6,6% lægri laun en karlar árið 2008 en leiðréttur munur minnkaði í 4,5% árið 2016, metið með hefðbundinni aðhvarfsgreiningu fyrir hvert ár.

Rannsókn Hagstofu Íslands á launamun kynjanna í samvinnu við aðgerðarhóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti leiðir í ljós að launamunur kynjanna minnkaði á tímabilinu 2008-2016.

Óskýrður launamunur var 4,8% en skýrður launamunur 7,4% á öllu tímabilinu 2008-2016. Skýrður launamunur segir til um hversu stór hluti launamunar skýrist af þeim skýringarþáttum sem lagðir eru til grundvallar í greiningunni en óskýrður stendur fyrir þann launamun sem ekki tókst að skýra, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Skipting tímabilsins 2008-2016 í þriggja ára tímabil leiðir í ljós stöðugt minnkandi launamun og fór óskýrði launamunurinn úr 4,8% á árunum 2008-2010 í 3,6% á árunum 2014-2016.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert