Funda með aðstandendum Hauks

Mynd­band sem sagt er vera af Hauki Hilm­ars­syni og tekið …
Mynd­band sem sagt er vera af Hauki Hilm­ars­syni og tekið í Afr­in í Sýr­landi í ár hef­ur verið birt á YouTu­be. Skjáskot/Youtube

Embætti ríkislögreglustjóra fundar í dag með aðstandendum Hauks Hilmarssonar en íslensk yfirvöld leita allra leiða til að staðfesta hvort fréttir um að Haukur hafi látið lífið í Sýrlandi eigi við rök að styðjast.

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri staðfesti þetta við mbl.is og sagði að embættið væri að vinna í málinu. Hann bætti við að embættið hafi leitað til þeirra erlendu aðila sem þeir séu í sambandi við en hafi ekki fengið staðfestingu á því að Haukur hafi látið lífið.

Þurý Björk Björg­vins­dótt­ir, sér­fræðing­ur hjá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu, segir að ráðuneytið sé að reyna að fá upplýsingar staðfestar og sé með alla anga úti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert