Kolbrún ráðin í forsætisráðuneytið

Kolbrún hefur verið ráðin verkefnastjóri vegna 100 ára fullveldisafmælis.
Kolbrún hefur verið ráðin verkefnastjóri vegna 100 ára fullveldisafmælis.

Kolbrún Halldórsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri fyrir forsætisráðuneytið í tengslum við hátíðarhöld 1. desember 2018 vegna 100 ára fullveldis Íslands. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Kolbrún Halldórsdóttir á að baki fjölbreytt störf á vettvangi sviðslista og stjórnmála, auk þess sem hún hefur gegnt embætti forseta Bandalags íslenskra listamanna sl. átta ár. Hún brautskráðist frá Leiklistarskóla Íslands 1978 og hefur síðan lokið viðbótar diplómanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Lengst af hefur Kolbrún starfað sem leikstjóri og sett á svið fjölda leiksýninga, m.a. fyrir Þjóðleikhúsið og Íslensku óperuna. Kolbrún var kjörin á þing fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð árið 1999 og átti sæti á Alþingi til ársins 2009. Þar starfaði hún í mennta- og menningarmálanefnd, umhverfisnefnd og allsherjarnefnd. Hún var umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrri hluta árs 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert