Starfshópur fjallar um kjör aldraðra

Starfshópur hefur verið skipaður um kjör aldraðra.
Starfshópur hefur verið skipaður um kjör aldraðra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skipaður verður starfshópur til að fjalla um kjör aldraðra, draga upp mynd af ólíkum aðstæðum þeirra og gera tillögur um hvernig bæta megi kjör þeirra sem lökust hafa. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Ásmundar Einars Daðasonar félags- og jafnréttismálaráðherra þess efnis.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að styrkja þurfi sérstaklega stöðu þeirra sem standa höllum fæti. Er þar lagt til að gerð verði sérstök úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, gerðar tillögur til úrbóta og þeim fylgt eftir,“ segir í tilkynningunni.

Þar er minnisblað félags- og jafnréttismálaráðherra nefnt til sögunnar en þar er bent á að þótt margir eldri borgarar búi við góð lífskjör sé hluti hópsins með afar takmörkuð eða engin réttindi úr lífeyrissjóðum og stundi ekki launaða vinnu.

Þeir sem þannig eru settir þurfi nær eingöngu að reiða sig á ellilífeyri almannatrygginga og greiðslur honum tengdum sér til framfærslu.

Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og velferðarráðuneytis, auk fulltrúa frá Landssamtökum eldri borgara. Velferðarráðuneytið mun leggja hópnum til starfsmann og gert er ráð fyrir að fleiri verði kallaðir að vinnu hópsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert