Samræmdu prófi frestað á ný

Búið er að fresta samræmdu prófi í ensku.
Búið er að fresta samræmdu prófi í ensku. mbl.is/Eyþór Árnason

Búið er að fresta samræmdu prófi í ensku sem 9. bekkur átti að taka nú í morgun. Menntamálastofnun ákvað það en tæknilegir örðugleikar komu upp í prófkerfinu.

Stofnunin segir að þeim sem er í prófinu og gangi vel sé heimilt að ljúka því.

Í fyrra­dag komu upp tækni­leg vanda­mál varðandi ís­lensku­prófið sem þýddi að fjöl­marg­ir nem­end­ur gátu ekki tekið prófið.

Kennarar og foreldrar höfðu látið reiði sína í ljós á Facebook-síðu Menntamálastofnunnar í morgun. Þar var til að mynda talað um að prófið væri algjörlega ómarktækt og þessir tækniörðugleikar gerðu það að verkum að álagið á unglingana væri allt of mikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert