Umbrotin vegna þess að lægstu hópar hafa setið eftir

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson prófessor.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson prófessor. mbl.is/Árni Sæberg

„Menn hafa vanrækt lægstu hópana. Þessir hópar hafa setið eftir og bilið breikkar á milli lægstu hópanna og annarra hópa,“ segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðssérfræðingur og dósent við HÍ.

Hann telur að þetta sé ein meginskýringin á þeim umbrotum sem nú eiga sér stað í verkalýðshreyfingunni sem sjást með sigri Sólveigar Önnu Jónsdóttur í formannskosningu í Eflingu og áður í kjöri Ragnars Þórs Ingólfssonar sem formanns VR.

Hann telur að það skipti launafólk miklu máli að hafa sameinaða og samstiga verkalýðshreyfingu. Annað sé vatn á myllu vinnuveitenda, segir Gylfi í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert