Alvarlegt slys við Kirkjubæjarklaustur

Alvarlegt bílslys varð við Kirkjubæjarklaustur fyrir skömmu en að sögn lögreglu er ekki ljóst á þessari stundu hversu alvarlegt það er en um árekstur tveggja bíla er að ræða. Ökumaðurinn var einn í öðrum bílnum en tveir voru í hinum bílnum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu alvarleg meiðsl þeirra eru en þeir eru allir með meðvitund, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.

Landhelgisgæslan sendi strax tvær þyrlur af stað á slysstað og er vegurinn lokaður og verður svo í einhvern tíma meðan viðbragðsaðilar athafna sig, bæði við björgun slasaðra og við rannsókn atvika. 

Bætt við klukkan 16:52

Klukkan 16:10 barst tilkynning um umferðaróhapp/slys á Suðurlandsvegi við Iðjuvelli skammt fyrir austan Kirkjubæjarklaustur og er vegurinn þar lokaður í báðar áttir. Engin hjáleið er í boði, segir í tilkynningu frá fjarskiptamiðstöð lögreglu.

Viðbragðsaðilar voru þegar sendir af stað, þar á meðal tvær þyrlur frá Landhelgisgæslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert