Gagnrýnivert að hafa ekkert „plan B“

Páll Magnússon er formaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Páll Magnússon er formaður allsherjar- og menntamálanefndar. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það má gagnrýna Menntamálastofnun fyrir að hafa enga varaáætlun tilbúna,“ segir Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Nefndin fundaði um samræmd próf og framkvæmd þeirra.

Fresta varð ís­lensku­prófi á miðviku­dag­inn vegna tækni­legra örðug­leika og það sama var uppi á ten­ingn­um í ensku­próf­inu sem átti að leggja fyr­ir á föstu­dag.

Páll sagði að fundurinn hefði verið gagnlegur en á hann komu, auk nefndarmanna, menntamálaráðherra, tveir sérfræðingar úr menntamálaráðuneyti, forstjóri Menntamálastofnunar og sérfræðingur þaðan. 

Lilja Alfreðsdóttir mætir á fundinn í dag.
Lilja Alfreðsdóttir mætir á fundinn í dag. mbl.is/Eggert

Forstjóri Menntamálstofnunar, Arn­ór Guðmunds­son, hefur áður útskýrt að skýringin á klúðrinu liggi hjá þjónustuaðila.

„Nefndarmenn eru eftir sem áður hundóánægðir með hvernig til tókst og finnst algjörlega óásættanlegt að svona skyldi takast til og það hafi ekki verið nein varaáætlun,“ segir Páll.

Ánægður með viðbrögð ráðherra

Hann segist vera ánægður með viðbrögð Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra en á miðviku­dag­inn verður fund­ur í mennta­málaráðuneyt­inu, þar sem tek­in verður ákvörðun um fram­haldið, þ.e. stöðu þess­ara prófa og gildi þeirra. 

Það er mikilvægast að þetta mál gagnvart nemendunum sjálfum sem urðu fyrir þessu verði leyst með sanngjörnum og réttlátum hætti gagnvart þeim,“ segir Páll og bætir við að meiningin sé að tillögur þess efnis verði kynntar í vikunni í kjölfar fundarins á miðvikudag.

Páll segir að það hafi ekki verið komið inn á það á fundinum hvort einhver hjá Menntamálastofnun verði dreginn til ábyrgðar vegna málsins. „Það liggur fyrir að ástæðan fyrir þessu lá hjá þjónustuaðila. Það má gagnrýna Menntamálastofnun fyrir að hafa ekki tilbúið plan B.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert