Nám í sjávarbyggðafræði hefst í haust

Nýtt meistaranám í sjávarbyggðafræði verður í boði við Háskólasetur Vestfjarða …
Nýtt meistaranám í sjávarbyggðafræði verður í boði við Háskólasetur Vestfjarða frá og með næsta hausti. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sjávarbyggðafræði, ný námsleið á meistarastigi, hefur göngu sína við Háskólasetur Vestfjarða næsta haust og hefur fjármögnun þess efnis verið tryggð. Gert er ráð fyrir að um 20 nemendur innritist árlega.

Sjávarbyggðafræði er þverfræðilegt nám sem byggir á inntaki og aðferðum félagsfræði, hagfræði, landfræði og skipulagsfræði. Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu kemur fram að námið er fyrsta sérhæfða námsleiðin í byggðafræði sem boðið er upp á hér á landi og samanstendur af 75 ECTS námskeiðum og 45 ECTS lokaverkefni.

Öll kennsla fer fram við Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði en nemendur eru formlega skráðir í Háskólann á Akureyri og útskrifast þaðan.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur tryggt fjármögnun fyrsta eina og hálfa árið með 15 milljón króna framlagi svo unnt verði að hefja innritun nemenda á haustönn 2018. Auk þess hafa framlög verið tryggð úr Sóknaráætlun Vestfjarða sem og framlag frá Háskólasetrinu sjálfu. Á grundvelli framgangs námsleiðarinnar mun ráðuneytið taka ákvörðun um frekari fjármögnun námsins til lengri tíma.  

„Ég legg áherslu á að styðja við menntun, vísinda- og rannsóknarstarf um allt land og þetta er liður í því. Það eru sóknartækifæri í að byggja upp þekkingarstarfsemi vítt og breitt um landið sem tekur mið af sérstöðu hvers landsvæðis fyrir sig. Þessi nýja námsleið er einmitt gott dæmi um hvernig samspil vestfirskra staðarhátta eru nýttir í kennslu til þess að byggja upp verðmæta þekkingarstarfsemi á svæðinu,“ er haft eftir  Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert