Öryggi ekki tryggt á bráðamóttökunni

Mikið álag hefur verið á bráðamóttökunni síðustu vikur.
Mikið álag hefur verið á bráðamóttökunni síðustu vikur. mbl.is/Hjörtur

Mikið álag og erfiðar aðstæður eru nú á bráðamóttöku Landspítalans og þannig hefur staðan verið síðustu vikur. Um miðjan febrúar var álagið sérstaklega mikið og var heilbrigðisráðherra þá upplýstur um stöðuna.

Þegar staðan var hvað erfiðust, aðfaranótt 13. febrúar, voru 63 sjúklingar á bráðamóttökunni þar sem rúmstæði eru fyrir 32 sjúklinga. Bið eftir læknisskoðun var allt að sex klukkustundir sem að mati sjúkrahússins er of langur tími til að ábyrgjast megi öryggi allra sjúklinga sem á móttökuna leita og skapar aukna hættu á alvarlegum atvikum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir þessum erfiðu aðstæðum á bráðamóttökunni á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag. Leggur ráðherra áherslu á að hratt verði unnið að verkefnum sem ákveðin hafa verið til að efla heilbrigðiskerfið og styrja mönnun þess. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.

Bíða í fimm sólarhringa á bráðamóttöku

Erfiðar aðstæður á Landspítala birtast einkum í því að mikill fjöldi sjúklinga leitar til sjúkrahússins á sama tíma og erfitt reynist að útskrifa þá sem lokið hafa meðferð. Líkt og áður sagði var fjöldi sjúklinga um miðjan febrúar langt umfram rúmstæði og bið eftir læknisskoðun það löng að ekki var hægt að tryggja öryggi allra.

Við þessar aðstæður hafa sjúklingar þurft að bíða í allt að fimm sólarhringa á bráðamóttöku eftir viðeigandi legurými á almennri deild. Vegna skorts á hjúkrunarfræðingum voru 35 rými lokuð á spítalanum og nýlega þurfti að loka tveimur gjörgæslurýmum af sömu ástæðum. Auk erfiðleika vegna skorts á hjúkrunarfræðingum hefur Landspítalinn bent á aukið álag vegna fjölgunar ferðamanna en á síðasta ári voru 17 prósent legudaga á gjörgæslu vegna ferðamanna.

Mikilvægt að skigreina verkaskiptinu

Fyrstu tvo mánuði ársins hefur komum á bráðamóttöku fjölgað um rúmlega 500 og hærra hlutfall þeirra sem leita á bráðamóttöku hafa þurft að leggjast inn

Þeir sem þurft hafa innlögn það sem af er ári hafa dvalið að jafnaði 16 til 17 klukkustundir á bráðadeild eftir að innlögn hefur verið ákveðin, á móti 13 til 14 klukkustunum á sama tíma á síðasta ári. Ástæða tafa á innlögn á almenna deild er skortur á rýmum.

Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að skilgreina hlutverk og verkaskiptingu innan kerfisins og hefja það víðtæka samstarf sem er nauðsynlegt til að efla nýliðun heilbrigðisstétta. Einnig sé uppbygging hjúkrunarrýma veigamikill þáttur í því að styrkja heilbrigðiskerfið og bæta þjónustu, ekki síst við aldraða sem ekki nægir sá stuðningur sem í boði er til að búa á eigin heimili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert