Grunnskólakennarar undirrita kjarasamning

Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara.
Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. mbl.is/Sigurður Bogi

Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara (FG) undirrituðu nýjan kjarasamning síðdegis. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2018 til 31. mars 2019. 

Í tilkynningu á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að kjarasamningurinn verður kynntur sveitarfélögum og félagsmönnum FG á næstu dögum, en niðurstaða úr atkvæðagreiðslu stéttarfélagsins um samninginn mun liggja fyrir 21. mars. 

Verði samningurinn samþykktur af báðum samningsaðilum verður hann aðgengilegur á vef sambandsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert