Hvetja til „Albertínuleiðarinnar“

Stjórn FKA hvetur konur til að sniðganga viðburði þar sem …
Stjórn FKA hvetur konur til að sniðganga viðburði þar sem ekki er gert ráð fyrir því að konur hafi eitthvað til málanna að leggja.

Stjórn FKA skorar á aðila í atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og hjá hinu opinbera, að gæta alltaf að því að bæði konur og karlar séu þátttakendur í umræðuviðburðum. Þá hvetur stjórn FKA konur til að grípa til sömu aðgerða og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir þingkona greip til á málþingi þann 8. mars síðastliðinn, þar sem þingkonan yfirgaf málþing Byggðastofnunar um raforku sem haldið var í Hofi á Akureyri á alþjóða baráttudegi kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA)

Fundarstjóri meira að segja karlmaður

Albertína hafði þá bent fundarhöldurum á skort á kvenþátttakendum á þinginu, en þar var ein kona af sjö meðal fyrirlesara en engin kona sat í panel. Til viðbótar má nefna að fundarstjóri var einnig karlmaður. Albertína sagði í samtali við mbl.is eftir umræddan fund að þetta hefði verið vandræðalegt, sérstaklega í ljósi þess hvaða dag málþingið fór fram. „Þetta á nátt­úru­lega ekki að koma fyr­ir í dag. Meira að segja fund­ar­stjóri var karl­maður,“ sagði Albertína jafnframt.

„Eins og for­stjóri Landsnets kom inn á þá er fram­kvæmda­stjórn­in þeirra t.d. skipuð jafn­mörg­um kon­um og körl­um þannig að Byggðastofn­un hefði verið í lófa lagt að óska eft­ir því að ein­hverj­ir full­trú­ar þeirra sem yrðu með er­indi væru kon­ur, svo ábyrgðin ligg­ur al­ger­lega hjá þeim.“

Albertína gerði það sem margar hafa hugsað

Stjórn FKA bendir á að samsetning sem þessi er óboðleg eigi viðburðurinn að teljast marktækur umræðuvettvangur eða samtal. Meðal annars megi benda á að atvinnuþátttaka kvenna er litlu minni en karlmanna, auk þess sem konur hafa í mörg ár verið í meirihluta þeirra sem útskrifast úr háskólanámi. FKA hvetur því konur til að sniðganga umræðuviðburði, sem ekki gera ráð fyrir að konur hafi eitthvað til málanna að leggja. Þannig sé „Albertínuleiðin“ í rauninni góð leið til málþingsmótmæla, þegar ástæða er til.

Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, segir Albertínu hafa gert það sem margar konur hafa hugsað í gegnum tíðina. Það sé því full ástæða til að þakka henni sérstaklega fyrir framtakið.

„Albertína sat ekki aðgerðarlaus og við hvetjum aðrar konur til að gera það ekki heldur. Konur ættu því annað hvort að yfirgefa viðburðina, eða hreinlega að sleppa því að mæta ef konum er ekki ætlað að hafa neitt til málanna að leggja hvort eð er.”

Stjórn FKA bendir á að margt hafi breyst til batnaðar í þessum efnum á síðastliðnum árum.  Hins vegar sjást enn reglulega auglýsingar um málþing, fundi og ráðstefnur þar sem konum er greinilega ætlað lítið eða ekkert hlutverk. Slík vinnubrögð eru ólíðandi og úrelt í dag og standast engin rök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert