Svartfjallaland á lista yfir örugg ríki

Forsætisráðherra Svarfjallalands, Dusko Markovic.
Forsætisráðherra Svarfjallalands, Dusko Markovic. AFP

Útlendingastofnun hefur bætt Svartfjallalandi á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki. Frá því Svartfjallaland fékk sjálfstæði frá Serbíu árið 2016 hefur einn einstaklingur frá Svartfjallalandi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en það var í fyrra.

„Svartfjallaland er stjórnarskrárbundið lýðræðisríki og er aðili að öllum helstu mannréttindasáttmálum, m.a. Genfarsáttmálanum og Mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindi eru almennt virt í landinu og ekki eru stundaðar kerfisbundnar ofsóknir gegn fólki.

Svartfjallaland hefur stöðu umsóknarríkis um aðild að Evrópusambandinu og eru viðræðurnar langt komnar. Útlendingastofnun hefur kannað aðstæður í Svartfjallalandi og fyrir liggur að allar forsendur eru fyrir hendi til að skilgreina landið sem öruggt ríki.

Rétt er að árétta að það eitt að umsækjandi um vernd sé frá ríki á listanum yfir örugg ríki leiðir ekki til þess að Útlendingastofnun taki mál hans ekki til skoðunar eða synji umsókn hans án undangenginnar rannsóknar. Þegar það á við eru mál ríkisborgara landa á listanum tekin til almennrar efnismeðferðar og er listinn því aðeins til hliðsjónar,“ segir á vef Útlendingastofnunar en hér má sjá nánari útlistun á þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert