Vinnuvika leikskólakennara verði 35 stundir

Starfshópur um nýliðun og bætt starfsumhverfi leikskólakennara í Reykjavík kynnti …
Starfshópur um nýliðun og bætt starfsumhverfi leikskólakennara í Reykjavík kynnti tillögur sínar fyrir fulltrúum í skóla- og frístundaráði í dag. mbl.is/Golli

Aðgerðir til að bæta starfsumhverfi í leikskólum, efla stuðning við leikskólakennara í starfi, fjölga leikskólakennurum og breyttu skipulagi náms í leikskólakennarafræðum eru meðal helstu tillagna sem starfshópur um nýliðun og bætt starfsumhverfi leikskólakennara í Reykjavík kynnti í dag fyrir fulltrúum í skóla- og frístundaráði. Alls eru tillögurnar 33.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að meðal tillagna starfshópsins sem miða að því að bæta starfsumhverfi er að unnið verði að því að auka rými barna í leikskólum, fjölgað verði stöðugildum í leikskólum vegna fjögurra og fimm ára barna, vinnuvika leikskólakennara verði stytt í 35 stundir, undirbúningstími deildarstjóra og leikskólakennara verði lengdur og að lokað verði í leikskólum á aðfangadag og gamlársdag. Þá er lagt til að farið verði í aðgerðir til að tryggja að húsnæði og umhverfi henti starfsemi leikskóla.

Til að styðja við leikskólakennara í starfi er lagt til að efla móttöku nýliða, að nýir leikskólakennarar fái mentor og aukinn stuðning  og að öðrum leikskólakennurum bjóðist handleiðsla í starfi. Þá er lagt til að farið verði í sértækar aðgerðir til að tryggja stöðugleika í starfsmannahópnum.

Laun leikskólakennara verði sambærileg við aðra sérfræðinga

Tillögur sem miða að því að fjölga leikskólakennurum ganga út á gera laun þeirra sambærileg við aðra sérfræðinga, efla ímynd leikskólakennarastarfsins og efna til heildrænnar kynningar á námi í leikskólakennarafræðum. Einnig að fara í kynningarátak meðal starfsmanna leikskóla um námsleiðir í átt að leikskólakennarafræðum, og búa til fjárhagslega hvata til að starfsmenn ljúki slíku námi. Þá er lagt til að farið verði í sértækar aðgerðir til að fjölga karlkyns leikskólakennurum.

Að lokum leggur starfshópurinn til að áfangar í leikskólakennaranáminu leiði til viðurkenningar í starfi og launasetningu og að leikskólakennurum bjóðist fleiri tækifæri til starfsþróunar. Lagt er til að farið verði í sértækar aðgerðir fyrir starfsmenn leikskóla sem ekki hafa lokið formlegu námi til að öðlast leikskólaréttindi og auka tengingu námsins við vettvanginn.

Áætlun um innleiðingu kynnt innan mánaðar

Starfshópur um nýliðun og bætt starfsumhverfi leikskólakennara í Reykjavík hefur starfað í rúmt ár og var skipaður kjörnum fulltrúum og fulltrúum Félags leikskólakennara, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Menntavísindasviðs HÍ, Félags stjórnenda í leikskólum, fulltrúum foreldra og sérfræðingum á skóla- og frístundasviði. Formaður hópsins var Hermann Valsson, sem jafnframt er varaformaður í skóla- og frístundaráði.

Á fundi sínum í dag fól skóla- og frístundaráð sviðsstjóra að vinna áætlun um innleiðingu á tillögum starfshópsins með kostnaðarmati og áfangaskiptingu og verði hún kynnt innan mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert