Funduðu um Vestmannaeyjaferju

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fundaði í dag með bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar um mögulegt rekstrarfyrirkomulag nýrrar Vestmannaeyjaferju.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu en ráðherra boðaði til fundarins í framhaldi af fjölmennum íbúafundi í Eyjum 21. febrúar um samgöngur á sjó. 

Á fundinum var rætt um hvaða rekstrarfyrirkomulag nýrrar ferju myndi tryggja bestu og hagkvæmustu þjónustuna. Fram kom í máli ráðherra að af þeim möguleikum, sem hann fór yfir á íbúafundinum, væri útboð til skemmri tíma, mögulega til tveggja ára, hagkvæmasta leiðin.

Ráðherra minnti á að útboð væri almennt viðurkennd leið til að ná hagkvæmri niðurstöðu fyrir almenningssamgöngur, eins og gert er nú á sjó, landi og í lofti, enda sé sú þjónusta sem óskað er eftir vel skilgreind.

Heimamenn óskuðu eindregið eftir því að gerður yrði samningur við Vestmannaeyjabæ um rekstur ferjunnar. Ráðherra lagði til að samráðshópur með fulltrúum Vegagerðarinnar, ráðuneytisins og Vestmannaeyingum kæmi að undirbúningi útboðsskilyrða s.s. skilgreiningu á þjónustu með hag íbúa að leiðarljósi.

Engin niðurstaða náðist á fundinum, en fundargestir voru sammála um að markmiðið væri að tryggja hag íbúa Vestmannaeyja, fyrirtækja og annarra sem best.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert